21febrúar
Oj...ég get ekki kyngt mínu eigin munnvatni..ég hrekk upp á nóttuni með munnin fullan af munnvatni. Ógeð.
Hef lítið sem ekkert borðað síðan á þriðjudag. Var að koma frá lækni áðan..ég hélt að hann myndi drepa mig..þegar hann var að taka svona stroku sýni þá hefði hann allveg eins getað verið með hníf þarna upp í kokinu...jæja...það kom svo í ljós að ég er með streptokokka sýkingu..og það bara býsna andskoti slæma..fékk pensilín....það er eins gott að þetta fari að lagast...orðinn ílla þreyttur á þessu!
Mig langaði bara að deila þessu með ykkur. Ekki kanski skemmtilegasta blogg sem ég hef skrifað.
07febrúar
Já..gaman gaman..ég er að fara á þorrablót á Ríben um helgina. Þetta verður án efa allger snilld. Það er víst búið að redda einhverju húsi or some sem við verðum í..Erum að fara fullt af fólki héðan frá Laugum. Ætli þetta verði ekki bara svona upphitun fyrir aðalblótið á Kópaskeri helgina eftir. Það verður án efa mjög gaman. Búinn að hlakka mikið til. Svo náttúrlega verður Tónkvíslin daginn eftir...gaman gaman. Svo held ég upp á afmælið mitt 29 feb. Það verður gaman. Ég mun senda út boðskort til þeirra sem ég vil að mæti..;) enn held að fólk geti nú allveg reiknað það út fyrir fram hvort þau fái boðskort eða ekki. semsé..þið sem þekkið mig vel takið frá föstudaginn 29. feb.
kv
Óli Jón Gunnarsson
ps. Gunnar Sigfússon sökkar haha
31janúar
Hvernig stendur á því að veðrið hér á Íslandi er allveg snarvængefið. Einn daginn er glaða sólskin og brakandi blíða og svo hinn daginn er orðið allveg snælldu vitlaust veður með snjóstormi og ógeði...Og ekki ná þessir blessuðu veðurfræðingar að spá fyrir þessu...það er varla að þeir geti sagt hvernig veðrið var í gær...óþolandi. Enn það sem fer mest í pirrurnar á mér er þessi ógeðis rigning...hún kemur þarna úr loftinu eins og eitthvað ógeð og slæst framan í mann og lætur mann verða hold votann á örskammri stundu og ekki nóg með það heldur þá fylgir henni oftast gríðarlegur kuldi..og kuldi og bleyta fara ekki vel saman...=kvef! Svo þegar þessi rigning er búin þá standa oftast eftir ógeðis pollar sem maður stígur í og blotnar upp fyrir haus!
Við Ómar bróðir eigum þetta sameiginlegt að þola ekki rigningu...Ef ég vill vera blautur...þá fer ég í STURTU!
28janúar
Já..nú ætla ég að skrifa um nákvæmlega ekki neitt merkilegt. Þannig er nú bara það að ég er í Vinnustofu í skólanum og barasta nenni ekki að gera nokkurn skapann hlut.
Þess vegna langar mig að eins að tuða útí loftið.
Nú mogga bloggarar hafa nú verið andskoti mikið í umræðuni uppá síðkastið... áramótaskaupið er gott dæmi...
Ég hef allveg bísna mikkla andstyggð af þessum mogga bloggum. Ég tel að allmennt séð þá sé þetta fólk sem hefur hreinlega ekkert meira og betra með tímann að gera heldur enn að vekja athygli á sér með því að tengja örfá orð við einhverja frétt á mbl.is.Einstaklega vitlaust athæfi. Ég vil taka það fram að það eru til undantekningar á þessu eins og öðru.
Nú svo eru líka til þeir mogga bloggarar sem hreinlega vita alltaf allt betur heldur enn það sem stendur í fréttinni, þeir fara sérstaklega mikið í taugarnar á mér..og hef ég látið nokkra vita að því persónulega í kommenti. Enn það sem mér finnst allra mest furðulegast í þessu er það að ég skoða þessi blogg alltaf!!
kv
Óli Jón Gunnarsson
26janúar
Er ég að fara að byrja aftur að blogga??...pifff....veit ekki hvort ég nenni því...það kom samt yfir mig einhver þörf núna til að kíkja á gömlu góðu sínu mína...efast reyndar um það að fólk kíki lengur á hana...þannig ef þú ert að lesa þetta blogg þá eru mjög mikklar líkur á því að þú hafir séð það að ég væri búinn að blogga á msn þar sem ég hyggst smella auglýsingu inn þegar ég er búinn að íta á vista...
Tja...eigum við að hafa þetta svona "stöðu tjékk" blogg? ...veit ekki
hálf nenni því ekki. Enn samt sem áður mun ég gera það að einhverju leyti.
Já eins og alþjóð veit þá er ég enn þá í framhaldsskólanum á Laugum og líkar það hreint ágætlega...klárlega einn besti skóli landsins. Nú, ég er meðstjórnandi í nemendafélaginu á Laugum og er það bara fínt. Maður hefur nú alltaf lúmst gaman að því að hafa puttana ofaní hlutunum...
Nú Tónkvísl er á næsta leyti og fyrir þá sem ekki vita hvað það er þá er það undankeppni á Laugum fyrir söngvakeppni framhaldsskólana. Tónkvíslin er ekki bara söngvakeppni fyrir framhaldsskólann heldur er hún grunnskóla keppni líka. Grunnskólar frá Vopnafirði og að Mývatnssveit taka þátt. Þess vegna verður þessi keppni gríðarlega stór og vegleg...ekkert er sparað til. Það er nú gaman að segja frá því að Haraldur Björnsson verður trommuleikarinn í hljómsveitini í ár.
Nú það er enn þá skemmtilegra að segja frá því að ég mun taka þátt í ár eins og á síðasta ári. Í fyrra lennti ég í 3. sæti og þar sem að Bjössi Ben frændi er hættur, en hann vann í fyrra, og Haukur og Sindri sem voru í öðru sæti eru líka hættir þá liggur það beinast við að ég muni vinna í ár og ætla ég mér að gera það.
Ég ætla að syngja Wonderwall með Oaisis. Ég ætla rétt að vona mín vegna að ég geri það flott...Æji annars kennum við bara Einari um það...það er fínt...hehe
Keppnin verður 17 febrúar...daginn eftir Þorrablótið heima...gaman gaman.
Enn jæja...hvað segiði..á ég að drullast til að fara að bróka mig og byrja að bloggast eins og hálfviti aftur..maður veit ekki..
Það er það að frétta af Snerti að ég er ennþá formaður knattspyrnudeildar Snartar og við erum að fara að keppa í deildarbikarnum núna í apríl. Gaman gaman.
2.mars næstkomandi verð ég tvítugur. Gaman gaman...stefnan er að halda partý ársins í tilefni að því...er ekki búinn að ákveða stað enn það verður líklega á Akureyri 1.mars...gaman gaman...
Jæja...nú rann af mér blogg æðið og ætla ég því að hætta...vonandi slysast einhverjir hérna inn og lesa...
verið sæl
Óli Jón Gunnarsson
08febrúar
www.myspace.com/olijongunn þarna má sjá prófæl um mig og þarna blogga ég líka.
28nóvember
Já...ég biðla til allra karlmanna sem hafa eitthvað sparkað í bolta og hafa áhuga á því að leika með liði í 3. deild að láta vita af sér.... Við erum með fótboltafélag á Kópaskeri sem heitir Snörtur og vegna fárra leikmanna sýnist okkur að þetta muni ekki ganga upp í ár að vera með...okkur sár vantar nokkra leikmenn... Ef þú hefur áhuga láttu mig þá vita og ég mun reyna að redda vinnu og húsnæði...
bendi einnig á blog.central.is/snortur ef þú villt sjá umræður og forvitnast aðeins um klúbbinn ef þú hefur áhuga....
Viðbót. Einnig er Kópasker þekkt fyrir mikið úrval af gífurlegum gellum...
Kv Óli Jón
10nóvember
já...komi tími til að menn hætti með Elvar að sofa hjá Thomas umræðuna...
Nú ég sit hér á Laugum í herbergi 23. sme heitir reyndar Grenjaðarstaður....ekki spurja mig afhverju....enn já ég bíð hér eftir Elvari sem er á leiðinni að sækja mig...leiðinn liggur í höfuðborg norðursins...hef ekki séð guðdóttur mína í 3 vikur og er kominn tími til að ég kíkji á hana.
enn ætli maður endi nú ekki í sjallanum eins og venjulega...Skímó að spila...
Enn annars hefur hugur minn aðalega verið við rjúpna veiðar síðustu helgar..held ég sé búinn að skjóta 9..eða 8...hreinlega man það ekki...enn það hefur gengið svona upp og ofan í þeim efnum... stundum hitti ég bara ekki rassgat og stundum stein liggur allt sem ég sé...enn þetta er svona...
Nú sambandi við síðasta pistil þá má segja það að 2 natural rauðkur hafi hringt í mig og spurt mig hvort þær væru ein af þessum 6, og viðð einni sagði ég já og hinni nei.
Nú...það má til gamans geta að ég nánast dó í fyrradag...já...þar misstuð þið næstum ykkar ástkæra óla...þannig er mál með vexti að það er handrið niður stigann hér á hæðinni minni og niður í lobby...og þar rennir maður sér nú ósjaldann niður...
nú það væri nú kanski ekki frásögu færandi nema hvað ég var að labba með stelpu sem heitir Hekla niður í lobbyið...og hún var á undann...og ég ákveð nú að sína sko hvað ég get og tek langt tilhlaup og stekk á handriðið...nú það vill nú ekki betur til en svo að ég snar stoppa og renn til hliðar með hausinn á undann niður í hyldýpið (stigann fyrir neðann) enn eins flótur að hugsa og ég er þá næ ég að grípa í rimlana sem halda handriðinu uppi og heng ég þar í nokkur sekondu brot og læt uppur mér nokkur vel valin orð...nú ég næ einvehrnneginn að hífa mig upp koma mér á lappir....og er býsna skelkaður eftir þetta...og svo lít ég á Heklu...nei...mín stendur í stiganum fyri neðan og er að glápa á myndir af einvehrju fólki sem var í skólanum 1937! allveg drullu sama þótt að Óli hafi verið að hanga þarna í lausu lofti og byrjaður að fá ofbirtu í augun af ljósinu sem hann var að stefna á....Takk Hekla mín...ég elska þig líka
Kv Óli
28október
Já..skrítinn pistill...enn samt ekki... Já Edda Rún, loksins er ég búinn að viðurkenna það, enn þú hefur nú reynt að halda því staðfast lega fram....ég er heitur fyrir rauðu hári... Ég held ég sé hreinlega kominn að þeirri niður stöðu að minn veikleiki fyrir hinu kyninu er rautt hár...Já...rautt hár... ég hef ósjaldann orðið býsna helv´tii hrifinn af stelpum og svo sem ekkert gert neitt meira í því enn aldrei spáð endilega í því að hárið á þeim lang flestum er rautt....og þá meina ég natural rautt... ég get nefnd allavega 6 stelpur sem e´g hef verið ógeðslega hrifinn af og eru þær allar natural rauðkur...
Ég hef reynt að fletta þessu upp á netinu og sjá hvort þetta eigi sér einvehrjar eðlilegar rökstuddar skýringar enn hef ekki ennþá haft erindi sem erfiði...
Enn auðvitað er ég ekki að tala um hverja einustu rauðku...ég meina fólk er nú misjafnt...
enn já...ég vildi bara koma þessu frá ykkur....og ef svo vildi til að þú sem lest þetta ert natural rauðka og ég hef horft á þig með löngunar augum þá engar á hyggjur...þetta er bara mitt skrítna rauðku sindrom...ég er sækó...:D
Aiiigt
Óli Jón
24október
Já kominn tími til að blogga smá...
það er svo langt síðann að ég bloggaði síðast að ég man ekki allt það sem ég hef gert....
Ég er búinn að fara 2x á rjúpu og einungis náð 1 rjúpu...ekki gott afrek það...enn bra skotið einu skoti....kanski jafnar það út...
Svo fór ég í sjallann síðusut helgí á á móti sól....það var býsna mikið stuð...
svo var prófa vika hér á laugum í síðusut viku...hefði mátt ganga aðeins betur í félagsfræði enn e´g náði stæ prófinu....gmana gmana...
ég man ekki hvrot e´g var búinn að blogga um það enn ég er búinn að skifta um herbergi....kominn í einsmans kústaskáp upp á gamla....herbergi 23 á Norðurvegi ef einvhver á leið hér um...er ekki með kaffi vél þannig egt ekki boðið í kaffi...
en já...ég er kominn í átak....ætla að fara á hvejrum degi í ræktina og eeftir það fara svo ífótbolta...gmana gmana
Ég nenni ekki að skrifa meira....ætla að fara að taka til í herberginu mínu til að ég fái gott í herbergisskoðun á morgunn....
Ciao
Óli