Örlítið blogg

já...komi tími til að menn hætti með Elvar að sofa hjá Thomas umræðuna...


Nú ég sit hér á Laugum í herbergi 23. sme heitir reyndar Grenjaðarstaður....ekki spurja mig afhverju....enn já ég bíð hér eftir Elvari sem er á leiðinni að sækja mig...leiðinn liggur í höfuðborg norðursins...hef ekki séð guðdóttur mína í 3 vikur og er kominn tími til að ég kíkji á hana.
enn ætli maður endi nú ekki í sjallanum eins og venjulega...Skímó að spila...

Enn annars hefur hugur minn aðalega verið við rjúpna veiðar síðustu helgar..held ég sé búinn að skjóta 9..eða 8...hreinlega man það ekki...enn það hefur gengið svona upp og ofan í þeim efnum... stundum hitti ég bara ekki rassgat og stundum stein liggur allt sem ég sé...enn þetta er svona...

Nú sambandi við síðasta pistil þá má segja það að 2 natural rauðkur hafi hringt í mig og spurt mig hvort þær væru ein af þessum 6, og viðð einni sagði ég já og hinni nei.

Nú...það má til gamans geta að ég nánast dó í fyrradag...já...þar misstuð þið næstum ykkar ástkæra óla...þannig er mál með vexti að það er handrið niður stigann hér á hæðinni minni og niður í lobby...og þar rennir maður sér nú ósjaldann niður...
nú það væri nú kanski ekki frásögu færandi nema hvað ég var að labba með stelpu sem heitir Hekla niður í lobbyið...og hún var á undann...og ég ákveð nú að sína sko hvað ég get og tek langt tilhlaup og stekk á handriðið...nú það vill nú ekki betur til en svo að ég snar stoppa og renn til hliðar með hausinn á undann niður í hyldýpið (stigann fyrir neðann) enn eins flótur að hugsa og ég er þá næ ég að grípa í rimlana sem halda handriðinu uppi og heng ég þar í nokkur sekondu brot og læt uppur mér nokkur vel valin orð...nú ég næ einvehrnneginn að hífa mig upp koma mér á lappir....og er býsna skelkaður eftir þetta...og svo lít ég á Heklu...nei...mín stendur í stiganum fyri neðan og er að glápa á myndir af einvehrju fólki sem var í skólanum 1937! allveg drullu sama þótt að Óli hafi verið að hanga þarna í lausu lofti og byrjaður að fá ofbirtu í augun af ljósinu sem hann var að stefna á....Takk Hekla mín...ég elska þig líka


Kv Óli

10. nóvember 2006 klukkan 23:26
Óli Jón Gunnarsson
Védís skrifar ...
shitt...rosaleg lífsreynslusaga, og stelpan missti af því...haha

við sjáumst svo bara í sjallanum óli minn
10. nóvember 2006 klukkan 23:57
Magnea skrifar ...
Váá og þarna horfðirðu bara niður í hyldýpið!! úffúff... var hún á einhverju eða?
11. nóvember 2006 klukkan 05:56
Edda skrifar ...
Já það er furða að það hafi enginn drepið sig á þessu handriði.
11. nóvember 2006 klukkan 18:59
Milla skrifar ...
Hvað myndi ég gera ef þú Óli minn nálgaðist ljósinu hínumegin...no more toyboy.....
Nema hvað......er hún rauðka?
13. nóvember 2006 klukkan 21:46
Morri skrifar ...
hehe...
djöfullegt að hún hafi ekki séð taktana og þar að auki ekki reynt að koma þér til bjargar í lífsháskanum!!!

Rjúpa um helgina... fös-lau og sund....
Argar og gargar mæta...
13. nóvember 2006 klukkan 23:30
Óli Jón skrifar ...
Morri: ég r til í rjúpur. Milla: nei hún er ekki Rauðka, hún er dökkhærð með krullur.
13. nóvember 2006 klukkan 23:57
Elvar Már skrifar ...
mæer finnst þetta fyndin saga...en skemmtileg leið itil að byrja pistil, já kominn tími til að menn hætti með ,,elvar sofa hjá Thomasi umræðuna"!!!
17. nóvember 2006 klukkan 03:33
hekla björk skrifar ...
hahahaha..þetta var gjégt fyndið! eg var of upptekin af gömlufólka myndunum heldur en að sjá þig hanga niður af handriðinu, og svo lika atvikið þar sem þú flaust á hausinn þegar við vorum að labba inn andirið.. þá hlóg maður mikið :D:D
17. nóvember 2006 klukkan 18:24
Óli Jón skrifar ...
Já Hekla mín...gott að þú skemmtir þér af mér...til þess er ég.
17. nóvember 2006 klukkan 19:27
Magnea skrifar ...
hehehe.... Mjög gott að heyra Óli minn að þú hafir ekkert breyst! ;D
20. nóvember 2006 klukkan 18:41
Andrea skrifar ...
heheh.. því ertu ekki búinn að segja mér þessa sögu? Fyrir að detta í fótbolta eða eittvað þarftu að nota eitt stykki hálskraga, en að fljúga á hausinn í stiganum! heheheheh.. ohh hvað ég hefði viljað ná þessu:D ég hefði ekki látið þig í friði eftir þetta. En hey, ég er enn ekki sátt við afsökunina "æj síminn dó og ég var bara að vakna núna" þegar ég reyndi að vekja þig í stæ.! hmm? hehe.. sjáumst!
26. nóvember 2006 klukkan 05:43
hekla björk skrifar ...
ég var of upptekin af myndunum!! ég tók ekkert eftir því þegar þú vasst eitthvað dinglandi í handriðinu! :O samt, snilld!
28. nóvember 2006 klukkan 05:20
Eva..:* skrifar ...
kjáni.. hvernig væri að ganga bara niður stigann venjulega kannski drepst maður ekki þá og fækkar þessum blessuðum slysum.. híhí finna góðu hliná öllu..híhí Hekla það eru almost allir búnir að skoða allar skólamyndirnar á veggjunum billjón sinnum, samt heldur fólk áfram að skoða þær í þeirri von um að sjá ekkkað nýtt.. elska þig samt hekla mín heheh.. gaman að þessu hehe
07. desember 2006 klukkan 14:20

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Klukkan

Könnun

Er ég að fá skalla?