Ha????

Er ég að fara að byrja aftur að blogga??...pifff....veit ekki hvort ég nenni því...það kom samt yfir mig einhver þörf núna til að kíkja á gömlu góðu sínu mína...efast reyndar um það að fólk kíki lengur á hana...þannig ef þú ert að lesa þetta blogg þá eru mjög mikklar líkur á því að þú hafir séð það að ég væri búinn að blogga á msn þar sem ég hyggst smella auglýsingu inn þegar ég er búinn að íta á vista...

Tja...eigum við að hafa þetta svona "stöðu tjékk" blogg? ...veit ekki
hálf nenni því ekki. Enn samt sem áður mun ég gera það að einhverju leyti.

Já eins og alþjóð veit þá er ég enn þá í framhaldsskólanum á Laugum og líkar það hreint ágætlega...klárlega einn besti skóli landsins. Nú, ég er meðstjórnandi í nemendafélaginu á Laugum og er það bara fínt. Maður hefur nú alltaf lúmst gaman að því að hafa puttana ofaní hlutunum...

Nú Tónkvísl er á næsta leyti og fyrir þá sem ekki vita hvað það er þá er það undankeppni á Laugum fyrir söngvakeppni framhaldsskólana. Tónkvíslin er ekki bara söngvakeppni fyrir framhaldsskólann heldur er hún grunnskóla keppni líka. Grunnskólar frá Vopnafirði og að Mývatnssveit taka þátt. Þess vegna verður þessi keppni gríðarlega stór og vegleg...ekkert er sparað til. Það er nú gaman að segja frá því að Haraldur Björnsson verður trommuleikarinn í hljómsveitini í ár.
Nú það er enn þá skemmtilegra að segja frá því að ég mun taka þátt í ár eins og á síðasta ári. Í fyrra lennti ég í 3. sæti og þar sem að Bjössi Ben frændi er hættur, en hann vann í fyrra,  og Haukur og Sindri sem voru í öðru sæti eru líka hættir þá liggur það beinast við að ég muni vinna í ár og ætla ég mér að gera það.
Ég ætla að syngja Wonderwall með Oaisis. Ég ætla rétt að vona mín vegna að ég geri það flott...Æji annars kennum við bara Einari um það...það er fínt...hehe
Keppnin verður 17 febrúar...daginn eftir Þorrablótið heima...gaman gaman.

Enn jæja...hvað segiði..á ég að drullast til að fara að bróka mig og byrja að bloggast eins og hálfviti aftur..maður veit ekki..

Það er það að frétta af Snerti að ég er ennþá formaður knattspyrnudeildar Snartar og við erum að fara að keppa í deildarbikarnum núna í apríl. Gaman gaman.

2.mars næstkomandi verð ég tvítugur. Gaman gaman...stefnan er að halda partý ársins í tilefni að því...er ekki búinn að ákveða stað enn það verður líklega á Akureyri 1.mars...gaman gaman...

Jæja...nú rann af mér blogg æðið og ætla ég því að hætta...vonandi slysast einhverjir hérna inn og lesa...

verið sæl

Óli Jón Gunnarsson
26. janúar 2008 klukkan 16:17
Óli Jón Gunnarsson
Petra Sif skrifar ...
Heyrðu mér líst vel á þetta hjá þér Óli minn =)!
26. janúar 2008 klukkan 16:31
Védís skrifar ...
Jedúddamía. Óli þú hefur lesið hugsanir mínar - í leiðindum mínum, sem ég sagði þér frá á msn áðan hehe, þá ákvað ég að renna yfir blogglistann minn og gamla síðan þín var þar og hey - þú ert búinn að blogga! Sko þig, ég hef vonað þetta í laumi.

Það verður sko gaman að verða tvítugur - þú verður að koma í mitt afmæli líka sem verður í byrjun apríl!
26. janúar 2008 klukkan 18:00
Harpa skrifar ...
júhú... blogg! :) á ekki að bjóða manni í afmælisparý?
26. janúar 2008 klukkan 18:42
hekla björk skrifar ...
loksins loksins óli !
blog..
allavega, allt að gerast.. takk fyrir djammið í gær ;D það var stuð .. hehe :)
sjáumst á laugum..
26. janúar 2008 klukkan 23:00
Lára skrifar ...
Sko þig, líst vel á :)

Sammála Védísi.. maður verður að hafa eitthvað að lesa þegar maður hengur svona á netinu !
27. janúar 2008 klukkan 14:29
Svala Rut skrifar ...
Hæhæ:D
Já ég hef trú á því að þú vinnir Tónkvíslina.....
Vildi nú bara kvitta fyrir innlitið....
Sjáumst bara í tíma á morgun....
27. janúar 2008 klukkan 23:19
Morri skrifar ...
Nei! Jólasveinn, jammjamm bara búinn að blogga....
Heldur því bara áfram, ég mæti í afmæli og á tónkvíslina....þarf ekki að nefna blótið. Vissi allt sem hér stóð :D hehehe
27. janúar 2008 klukkan 23:26
bjössi frændi skrifar ...
sæll pungur!!! ég mæti í party hjá frænda mínum ef þú ætlar að hafa það svakalegt...enn eitt verð ég að hryggja þig með en það er að þú átt aldrei eftir að vinna tónkvíslinna!!! veit það, vona það og þori næstum að ábyrgjast það!! farðu samt vel með þig
27. janúar 2008 klukkan 23:49
bjössi frændi skrifar ...
nei nei trúi á þig gamli....þú tekur þetta
27. janúar 2008 klukkan 23:53
Óli Jón skrifar ...
haha..fékkstu samviskubit Bjössi? haha
28. janúar 2008 klukkan 00:32
Einar skrifar ...
Frábært blogg! (broskall með pípuhatt að reykja camel filterslausan, alveg að springa úr hlátri)
28. janúar 2008 klukkan 10:17
bjössi frændi skrifar ...
já hehe ég ætlaði ekki að vera svona harðorðaður
28. janúar 2008 klukkan 12:58
Magnea Dröfn skrifar ...
hæhæ...
Er mér boðið í stórafmælið þitt þó að ég hafi ekki nefnt þig á blogginu mínu um daginn?!? heheh...
En ég mæti á tónhvíslina og styð þig heilshugar!! ;D
28. janúar 2008 klukkan 21:08
Eva skrifar ...
Magnað blogg gangi þér bara vel á Tónkvíslinni:D
29. janúar 2008 klukkan 14:30
Frænkan skrifar ...
Hæ ,hæ ..Flottur og sooooooo duglegur ,þurfti ekki meira en að kalla þig lási bloggara,samt finnst mér að ég sé frekar hófvær í orðavali um þig ," VINIR ÞÍNIR" kalla þig bæði PUNG og JÓLASVEIN.Hvernig fór með gillfiskamynniÐ.
29. janúar 2008 klukkan 16:43
Óli Jón skrifar ...
ættir að læra um slangur "frænka" ef maður tæki þetta allvarlega þá yrði maður grenjandi allan daginn...enn það er engin skömm að því að vera kallaður jólasveinn..ég er jólasveinn og heiti Bjúgnakrækir.
29. janúar 2008 klukkan 16:48
Gagga....... skrifar ...
Hæ hæ ,ok þú ert svoddan jólasveinn.Eftirleiðis skrifa ég undir nafninu "GAGGA" það er mitt gælunafn hjá þeim sem eru í uppáhaldi hjá mér (ég er nefnilega pínu gaga) Við vitum ekki mikið um hvort annað,en það er eitthvað spes við þig,mjög áhugaverður með góðan húmor,Þetta átti að vera gullfiskamynni en ekki gill.
29. janúar 2008 klukkan 18:37

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Klukkan

Könnun

Er ég að fá skalla?