eitt um ekki neitt
Já..nú ætla ég að skrifa um nákvæmlega ekki neitt merkilegt. Þannig er nú bara það að ég er í Vinnustofu í skólanum og barasta nenni ekki að gera nokkurn skapann hlut.Þess vegna langar mig að eins að tuða útí loftið.
Nú mogga bloggarar hafa nú verið andskoti mikið í umræðuni uppá síðkastið... áramótaskaupið er gott dæmi...
Ég hef allveg bísna mikkla andstyggð af þessum mogga bloggum. Ég tel að allmennt séð þá sé þetta fólk sem hefur hreinlega ekkert meira og betra með tímann að gera heldur enn að vekja athygli á sér með því að tengja örfá orð við einhverja frétt á mbl.is.Einstaklega vitlaust athæfi. Ég vil taka það fram að það eru til undantekningar á þessu eins og öðru.
Nú svo eru líka til þeir mogga bloggarar sem hreinlega vita alltaf allt betur heldur enn það sem stendur í fréttinni, þeir fara sérstaklega mikið í taugarnar á mér..og hef ég látið nokkra vita að því persónulega í kommenti. Enn það sem mér finnst allra mest furðulegast í þessu er það að ég skoða þessi blogg alltaf!!
kv
Óli Jón Gunnarsson
28. janúar 2008 klukkan 14:18
Óli Jón Gunnarsson
Óli Jón Gunnarsson
- lokaorðin góð ,, Enn það sem mér finnast allra mest furðulegast í þessu er það að ég skoða þessi blogg alltaf!!"
Þarna þekki ég þig:) haha
Sé þig í upp103 á eftir þar sem ég geri ráð fyrir að þú látir ljós þitt skýna;)