smá pirringur
Hvernig stendur á því að veðrið hér á Íslandi er allveg snarvængefið. Einn daginn er glaða sólskin og brakandi blíða og svo hinn daginn er orðið allveg snælldu vitlaust veður með snjóstormi og ógeði...Og ekki ná þessir blessuðu veðurfræðingar að spá fyrir þessu...það er varla að þeir geti sagt hvernig veðrið var í gær...óþolandi. Enn það sem fer mest í pirrurnar á mér er þessi ógeðis rigning...hún kemur þarna úr loftinu eins og eitthvað ógeð og slæst framan í mann og lætur mann verða hold votann á örskammri stundu og ekki nóg með það heldur þá fylgir henni oftast gríðarlegur kuldi..og kuldi og bleyta fara ekki vel saman...=kvef! Svo þegar þessi rigning er búin þá standa oftast eftir ógeðis pollar sem maður stígur í og blotnar upp fyrir haus!Við Ómar bróðir eigum þetta sameiginlegt að þola ekki rigningu...Ef ég vill vera blautur...þá fer ég í STURTU!
31. janúar 2008 klukkan 17:39
Óli Jón Gunnarsson
Óli Jón Gunnarsson
