Letihaugur.
Já...kanski það...kanski er ég letihaugur eins og ástkær bróðir minn orðaði það í kommenti á síðasta pistil minn...nú ýmsar ástæður liggja að baki þess að ég hef ekki bloggað í þó nokkra daga...nú sú fyrsta er að sjálfsögðu leti. nú önnur ástæðan er að ég hef verið net sambandslasu þangað til núna. nú sú 3. er að ég hef verið að læra mikið og er í fjárnámi í ítölsku ofaná venjulega stundartöflu og þar með er býsna helvíti mikið að læra....nú svo er 4 ástæðan sú að það hefur bara ekki gerst neitt rosalega mark verkt hérna sem vert er að skrifa um á hverjum degi pistil...en þið megið svo sem kalla það leti...mér er sama...nú ætli maður byrji ekki á einvehrjum pistili...ég sit hérna í herbergi 317 og bíð eftir því að klukkan verði 6 þar sem þá kemur rútan sem fer til Ak...Já ég ætla að taka rútuna þar sem enginn virðist vera á leiðinni til ak eða nennir allavega ekki að segja mér það.
Nú já ég ætla til ak um helgina....eikkað verður kíkt á djammið...og verður það voðandi gaman...veit reyndar ekkert hverjir verða þar enn það kemur bara í ljós.
Nú... síðustu helgi var ég heima á Efri-Hólum. Göngur og réttir... ég reyndar fór ekki í göngur frekar enn venjuleg.. enn ég hef ekki einu sinni farið í 1. göngur öll mín 18 ár. ´
Nú ég fór einu sinni upp í heiði á gæs með Bibba aka Sigurbjörn. það kom aðeins eitt flug og þær settust ekki þannig við skutum ekki einu sinni á þær...eina sem ég fe´kk úr þessari ferð var bólginn litli putti þar sem ég festi mig í drullu og datt framfyrir mig og lenti litli puttinn beint á steini og var það allveg agalega vont. þess má geta að ég hef brotið þennan putta einu sinni og einu sinni tognað á honum þannig hann er bara í hakki...bólgann reyndar sjöðnum (?) núna enn hann er mjög aumur greyið...kanski eins og eigandinn... ég veit ekki... :D .... nú já...Réttirnar voru bara svona eins og venjulega nem,a það var heldur skrítið að sjá hvergi nokkur staðar lamb með markinu hans pabba...og fannst okkur Ottó það miður...enn við drógum þá bara rollurnar í staðin..nú við fengum að sjálfsögðu eins og vanalega Læri a La mamma þegar rolluirnar voru komnar úr heiðinni á laugardeginum og svo Hangikjöt a La mamma eftir réttir á sunnudeginum....opg er það alltaf jafn gott...held hreinlega að enginn kokkur geti slegið gömlu við...það er nú hreinlega þannig bara...
en já...ætli það hjafi nokkuð meira markvert gerst... ég fer bara og legg mig til 6 og svo er það djammið bara.
Kv Óli
15. september 2006 klukkan 19:53
Óli Jón Gunnarsson
Óli Jón Gunnarsson