12júlí

Frábært veður um helgin.

http://www.vedur.is/vedrid/naestu_dagar.html?

haldiði að þetta veðri ekki bara snild?
12. júlí 2006 klukkan 22:49
Óli Jón Gunnarsson
3 athugasemdir
12júlí

Forza Italia!

Mamma mia...ár og aldir síðann e´g bloggaði síðast...og nú geri ég það loksins á nýrri síðu...fer með tísku bylgjunni eins og aðrir og hef fært mig inn á bloggar.is.... þannig er það...en hvar á maður að byrja?

nú ég er kominn heim frá Ítalíu...sú ferð var náttúrulega í heildina snild...enn það er svo langur tími síðann þá að ég hef öruglega gleymt öllu sem hefur skeð síðann e´g kom heim enn ég geri mitt besta til að rifja það helsta upp...
´
Nú...ég er hér kominn í vinnu í Silfurstjörnunni...ég vinn með Láru, Mara, Björgvinni og öðru venjulegu silfurstjörnu fólki...og svo auðvitð Andrés Páll!!!

vinnan er svo sem ágæt...erum að smíða að ég held 4500 fermetra hús...eða þar að segja..ég veit að ég er að byggja hús enn ég veit bara ekki hvað það er stórt... gengur það ágætlega bara...
bara eitt sem fer virkielga í taugarnar á mér og það eru launinn enn þau eru fyrir neðan allar hellur... þarf að ræða það við yfirmenn mína

nú svona helst á dagskrá núna er að fara í útilegu um helgina með mínu vina hóp... getiði bara í eyðurnar sko...:D

en svo vann náttúrulega Ítalía heimsmeistara titilinn í knattspyrnu eins og flestir vita og er ég mjög ánægður með það þó ég hafi ekki spáð þeim góðu gengi blessuðum..enn þeir kunna þetta....

Nú ég er kominn inn á framhaldsskólann á Laugum og mun hefja þar nám í haust og stefna af því að ná stúdentsprófi á eins stuttum tíma og ég get..vonum að það takist vel....

enn ætli ég nenni varla að hafa það lengra í bili...

veriði bara sátt með það að ég hafi nennt þessu :D

ciao ciao

kv Óli Jón

12. júlí 2006 klukkan 01:31
Óli Jón Gunnarsson
3 athugasemdir

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Klukkan

Könnun

Er ég að fá skalla?